Bárður SH 81

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Það var farið að skyggja þegar Bárður SH 81 frá Ólafsvík kom til hafnar á Húsavík á áttunda tímanum í kvöld.

Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. en að því fyrirtæki stendur Pétur Pétursson skipstjóri og útgerðarmaður á Arnarstapa á Snæfellsnesi.

Smíði bátsins fór fram í Bredgaard bátasmiðjunni í Rødby í Danmörku og er hann með smíðanúmer 135 hjá stöðinni. Bárður kom til landsins í nóvembermánuði 2019.

Bárður SH 81 er 26,90 metra langur og 7 metra breiður og mælist 153 brúttótonn að stærð. 

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd