
Norska skemmtiferðaskipið Viking Jupiter siglir hér út frá Split í Króatíu síðdegis í gær.
Ferðinninn heitið til annarrar borgar við Adríahafið, Dubrovnik, sem einnig er í Króatíu.
Viking Jupiter er 47,861 GT að stærð, lengd skipsins er 228 metrar og breiddin 29 metrar.
Skipið, sem var smíðað í Ancona á Ítalíu árið 2019, siglir undir norskum fána með heimahöfn í Bergen.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.