Komu sjóleiðina á Mærudaga

108. Húni II EA 740 ex Húni II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Það komu góðir gestir sjóleiðina á Mærudagana sem standa yfir á Húsavík þessa helgina.

Þetta voru skipverjar á Húna II sem sigldu frá Akureyri til Húsavíkur til að taka þátt í bæjargátíðinni.

Húni II var smíðaður í skipasmíðastöð KEA á Akureyri árið 1963 og hét upphaflega Húni II HU 2 frá Höfðakaupstað.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd