Siggi Þórðar

1445. Siggi Þórðar GK 197 ex Skrúður RE 445. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Siggi Þórðar GK 197 er hér í Húsavíkurslipp árið 2013 en báturinn hét upphaflega Fanney ÞH 130.

Fanney var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri árið 1976 fyrir Húsvíkinga en þaðan var báturinn gerður út til ársins 1997. 

Sölkusiglingar ehf. keyptu bátinn aftur til Húsavíkur síðla árs 2012 en þá hafði honum verið breytt til farþegaflutninga. 

Báturinn fékk aftur sitt gamla nafn, Fanney og hóf siglingar með ferðamenn á Skjálfanda vorið 2013.

Fanney hefur legið við bryggju á Húsavík undanfarnin ár.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd