
Skemmtiferðskipið Silver Spirit kom inn á Skjálfanda í morgun og lagðist við akkeri framundan Húsavíkurhöfða og farþegar þess fluttir í land á léttbátum skipsins.
Skipið, sem var smíðað í Ancona á Ítalíu árið 2008, er 211 metrar að lengd, 27 metra breitt og mælist 36.009 GT að stærð.
Silver Spirit siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í Nassau.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution