Sævar ÞH 3

847. Sævar ÞH 3. Ljósmynd úr einkasafni.

Flott þessi mynd af Sævari ÞH 3 frá Grenivík sem smíðaður var hjá Skipasmíðastöð KEA árið 1962.

Eigendur voru bræðurnir Brynjar og Sævar Sigurðssyni á Grenivík.

Árið 1972 var báturinn seldur yfir fjörðinn til Dalvíkur þar sem fékk hann nafnið Vinur EA 80.

Vinur var seldur til Siglufjarðar árið 1978 og fékk báturinn, sem er tæplega 15 brl. að stærð, nafnið Dröfn SI 67.

Árið 1983 var hann seldur til Ólafsvíkur þar sem hann var gerður út þar til yfir lauk. Báturinn fékk nafnið Friðrik Bergmann SH 240 sem hann bar til ársins 1987.

Þá fékk báturinn nafnið Tindur SH 179 en hann var afskráður síðla árs 1994 og var síðar tekinn á land við Ólafsvík.

Þar stóð hann uppi allt fram á þetta ár er hann var rifinn á staðnum.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd