Aðalbjörg II RE 236

1414. Aðalbjörg II RE 236 ex Vinur EA 80. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Aðalbjörg II RE 236 hét upphaflega Vöttur SU 3 og var báturinn var smíðaður árið 1975 í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri.

Vöttur mældist 29 brl. að stærð og var búinn 300 hestafla Vovo Penta aðalvél.

Snemma árs 1978 var hann seldur til Dalvíkur þar sem hann fékk nafnið Vinur EA 80. 

Aðalbjörg s/f í Reykjavík kaupir bátinn árið 1983 og nefnir Aðalbjörgu II RE 236. Hann átti síðar eftir að heita Gulltoppur ÁR 321Haförn ÞH 26, Ási ÞH 3 og núverandi nafn Áskell Egilsson fékk hann árið 2017. 

Áskell Egilsson er gerður út til hvalaskoðunar á Eyjafirði en þess má geta að árið 1987 var upphaflega aðalvélin leyst af hólmi með nýrri 300 hestafla Volvo Penta.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd