![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2024/05/7323_2.jpg?w=1024)
Kristín GK 18 hét upphaflega Draupnir VE 550 og var smíðuð árið 1991 í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði.
Árið 1994 fékk báturinn nafnið Kristín HF 165 með heimahöfn í Hafnarfirði. Fimm árum síðar var hann kominn austur á Bakkafjörð og Kristín orðin NS 35.
Það var svo árið 2021 sem báturinn fékk núverandi nafn og er gerð út af Útgerðafélaginu Víkingi ehf. með heimahöfn í Garði.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.