
Skemmtiferðaskipavertíðin hófst síðdegis í dag þegar norska leiðangursskipið Fram kom til Húsavíkur.
Fram, sem einnig var fyrst skipa á ferðinni hér á síðasta vor, er gert út af fyrirtækinu Hurtigruten og er með heimahöfn í Tromsö.
Skipið er nefnt eftir skipi norsku landkönnuðanna Roald Amundsen og Fridtjof Nansen.
Fram var smíðað á Ítalíu árið 2007, skipið er 113 metrar að lengd, breidd þess er 26 metrar og það mælist 11,647 GT að stærð.
Fram mun láta úr höfn um miðjan dag á morgun.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution