Kleifaberg og Mánaberg

1360. Kleifaberg ÓF 2 – 1270. Mánaberg ÓF 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005.

Hér gefur að líta frystitogarana Kleifaberg ÓF 2 og Mánaberg ÓF 42 við bryggju á Ólafsfirði.

Myndin var tekin þann 3. júní árið 2005 og Sjómannadagshelgin framundan.

Kleifabergið hét upphaflega Engey RE 1 og var smíðað fyrir Ísfell hf. í Póllandi árið 1974.

Mánabergið var einn Spánartogaranna og hét upphaflega Bjarni Benediktsson RE 210.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd