
Afi Aggi EA 399 kemur hér að landi á Dalvík í júníbyrjun árið 2005 en hann hafði þá nýlega verið keyptur þangað.
Báturinn, sem áður hét Kári GK 146, var smíðaður í Halmstad í Svíþjóð árið 1954 og mældist 39 brl. að stærð.
Hann hét upphaflega Sigurfari SF 58 frá Hornafirði, síðar Farsæll SH 30 og Örninn KE 127 áður en hann fékk Káranafnið sem hann bar í tæplega 40 ár.
Árið 2010 fékk báturinn nafnið Aníta KE 399, hann lá lengi í Grindavíkurhöfn og fékk að lokum Dúa II RE 400 á pappírum.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution