Airisto kom til Húsavíkur í kvöld

IMO 9213727. Airisto siglir inn Skjálfanda í kvöldsólinni. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Finnska flutningaskipið Airisto kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Bökugarðinum þar sem hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka verður skipað upp.

Skipið var smíðað í Hollandi árið 2000 og hefur áður borið nöfnin Malte Rambow 2000-2003, Annalisa frá 2008-2013 og Ara Amsterdam árin 2013-2018.

Airisto er 132,6 metrar að lengd, 15,9 metra að breidd og mælist 6,154 GT að stærð.

Skipið er með heimahöfn í Turku í Finnlandi.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd