
Handfærabáturinn VOn GK 175 kemur hér að landi í Sandgerði sl. fimmtudag sem var fyrsti strandveiðadagur tímabilsins í ár.
Von hét upphaflega Hafborg KE 54 og var smíðuð í Noregi árið 1987 en var seld til Grímseyjar ári síðar.
Þar hélt hún nafni sínu en varð EA 152 og var lengd árið 1995. Eftir það mælist hún tæp 11 BT að stærð.
Árið 1998 varð hún EA 155 en aldamótaárið 2000 verður Hafborgin GK 321 með heimahöfn í Vogum og síðar Sandgerði.
Hafborg var seld árið 2007 og fékk nafnið Lilja BA 107 með heimahöfn á Bíldudal.
Árið 2018 fær báturinn það nafn sem hann ber í dag, Von GK 175 og var með heimahöfn í Sandgerði þar til á þessu ári. heimahöfn hans í dag er í Garðinum.


Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution