
Togskipið Áskell ÞH 48 kom til löndunar í Hafnarfirði í hádeginu í dag og þá voru þessar myndir teknar.
Það er Gjögur hf. sem gerir Áskel en hann er í hópi sjö systurskipa sem norsk skipasmíðastöðin VARD smíðar fyrir íslenskar útgerðir og þar af tvö fyrir Gjögur hf., hitt er Vörður ÞH 44 sem var einnig í Hafnarfirði í dag.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution