![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2024/04/7526.jpg?w=1024)
Strandveiðibáturinn Kristín ÞH 55 kom til Húsavíkur í dag en veiðar mega hefjast 2. maí nk.
Kristín er gerð út af Möðruvöllum ehf. á Akureyri en er með heimahöfn á Raufarhöfn þaðan sem hún hefur jafnan verið gerð út.
Hér má lesa nánar um bátinn sem var smíðaður á Akranesi árið 2003.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution