![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2024/04/hav_norlandia.jpg?w=1024)
Færeyska flutningaskipið Hav Norlandia kom til Húsavíkur um miðjan daginn með áburðarfarm.
Skipið var smíðað í Slóvakíu árið 2005 og hét áður Ostenau. Það er 87,85 metrar að lengd og breidd þess er 12,8 metrar. Það mælist 2,461 GT að stærð.
Það siglir eins og áður segir undir Færeysku flaggi og er með heimahöfn í Glyvrar.
![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2024/04/hav_norlandia_3.jpg?w=1024)
![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2024/04/hav_norlandia_2.jpg?w=1024)
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution