
Aron ÞH 105 frá Húsavík er hér á heimstími sýnist mér, siglir inn með Tjörnesi eftir að hafa verið að veiðum með þorskanót.
Aron ÞH 105, sem var 11 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Guðmund A. Hólmgeirsson í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1971.
Báturinn var á Húsavík til ársins 1977 er hann var seldur til Ólafsfjarðar en þar hélt hann nafni sínu en varð ÓF 55.
Raunar hét báturinn alla tíð Aron en var HF 555 árið 1990 en 1991 aftur ÓF 55 sem var skráning hans þegar hann var tekinn af skipaskrá vorið 1992.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution