
Skýjaborgin ÞH 118 var smíðuð í Bátagerðinni Samtak í Hafnarfirði árið 1987 og hét upphaflega Lási BA 126.
Lási var með heimahöfn á Bíldudal og var þar til ársins 1991 er hann var skráður á Seyðisfirði. og fékk nafnið Sólrún NS 26.
Sama ár var báturinn dekkaður og fékk skipaskrárnúmerið 2129 en áður var það 7174. Síðla árs 1991 var báturinn skráður sem Sólrún ÍS 95 með heimahöfn á Flateyri.
Árið 1992 hét hann Nonni Helga HF 72, með heimahöfn í Hafnarfirði en 1994 var hann kominn aftur til Flateyrar. Nú sem Karólína ÍS 350.
Það var svo árið 1996 sem báturinn var keyptur til Húsavíkur og fékk nafnið Skýkaborgin ÞH 118. Frá Húsavík var báturinn gerður út til ársins 2002 er hann var seldur á Hofsós þar sem hann fékk nafnið Óskar SK 13. þar sem hann fékk nafnið Tjaldur ÓF 3.
Frá árinu 2004 hefur báturinn, sem er tæpar sex brl. að stærð, heitið Tjaldur ÓF 3 með heimahöfn á Ólafsfirði. Heimild: aba.is
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution