
Flutningaskipið Wilson Hanstholm kom að bryggju á Húsavík nú undir kvöld eftir að hafa legið við stjóra framundan Húsavíkurhöfða síðan í gær.
Skipið, sem er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka siglir undir fána Barbados og er heimahöfn þess í Bridgetown.
Winston Hanstholm var smíðað í Búlgaríu árið 1998 og hét Tinsdal til ársins 2020
Skipið er 90,3 metrar að lengd, breidd þess er 15,2 metrar og það mælist 2,981 GT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution