Anna HF 39

284. Anna HF 39 ex Anna ÓF 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Anna HF 39 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn um árið en báturinn var með heimahöfn í Hafnarfirði árin 1984-1993.

Upphaflega Anna ÓF 7, smíðuð fyrir Ólafsfirðinga í Slippstöðinni á Akureyri árið 1961. Báturinn, sem var 20 brl. að stærð, var seldur til Hafnarfjarðar árið 1984 og varð þá HF 39.

Árið 1993 var Anna seld til Siglufjarðar þar sem hún fékk nafnið Dröfn SI 67 en er komin suður aftur árið 1997.

Þá fékk báturinn nafnið Haförn GK 120 með heimahöfn í Garðinum og síðar í Sandgerði.

Árið 1998 fékk báturinn nafnið Knútur RE 22 og heimahöfn í Reykjavík. það var svo árið 2000 sem báturinn fékk sitt síðasta nafn á íslenskri skipaskrá en það var Sólborg RE 22.

Báturinn var afskráður árið 2010 og hafði þá legið lengi í höfn.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Ein athugasemd á “Anna HF 39

Færðu inn athugasemd