
Það hefur áður birst mynd af Mávinum SI 76 sem tekin var 2015 en núna koma nokkrar frá sumrinu 2012.
Mávur SI 96 hét upphaflega Ingunn Sveinsdóttir AK 91 og var smíðaður árið 2010 hjá Siglufjarðar-Seig fyrir Harald Böðvarsson & co ehf. á Akranesi.
Báturinn, sem er 14,77 BT að stærð, var seldur Siglunesi hf. á Siglufirði árið 2012. Árið 2015 var Páley ehf. skráður eigandi en Mávurinn var seldur til Noregs árið 2017.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution