Melavík SF 34

1125. Melavík SF 34 ex Bergvík KE 65. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Melavík SF 34 frá Hornafirði liggur hér í Grindavíkurhöfn um árið báturinn var smíðaður hjá Einar S. Nielsen Mek. Verksted A/S í Harstad í Noregi og afhentur á árinu 1968.

Upphaflega bar nafnið Palomar T-22-SA en árið 1970 keypti Útgerðarfélagið Óðinn h/f á Suðureyri við Súgandafirði bátinn til Íslands.

Hann fékk nafnið Kristján Guðmundsson ÍS 177 sem hann bar til ársins 1980 en þá var hann seldur austur á Eskifjörð. Kaupandinn var Þór s/f sem nefndi bátinn Vött SU 3.

Árið 1987 var Vöttur SU 3 seldur útgerðarfyrirtækinu Eldey h/f á Suðurnesjum og fékk hann það nafn sem hann ber á myndinni, Eldeyjar Hjalti GK 42.

Eldeyjar Hjalti GK 42, sem var 170 brl. að stærð, átti síðar eftir að heita, Bergvík KE 65 áður en hann fékk Melavíkurnafnið.

Í 28. tbl. Austra árið 1995 mátti finna þessa frétt:

Um miðjan júlí síðastliðinn bættist línubáturinn Melavík SF 34 í flota Hornfirðinga. Melavík er 170 tonn og gerð út af samnefndu fyrirtæki sem er sameign Útgerðar Sigurðar Ólafssonar og Fiskhóls.

Melavík er keypt frá Keflavík, en þar bar hún nafnið Bergvík. Áður hét skipið Vöttur og var gert út frá Eskifirði. Fyrirhugað er að Melavíkin fari á veiðar upp úr mánaðarmótum. Bátnum fylgir 350 tonna þorskígildiskvóti.

Síðasta nafn bátsins var Gerður ÞH 110 og stóð báturinn lengi undir vegg við Skipasmíðastöð Njarðvíkur en fór í pottinn til Belgíu árið 2013.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd