
Súlan EA 300 siglir hér inn Eyjafjörð með heimahöfn sína Akureyri sem áfangastað.
Súlan var 354 brl. að stærð, smíðuð í Fredrikstad í Noregi 1967 fyrir Leó Sigurðsson á Akureyri. Hún var lengd í Hollandi 1974 og mældist þá 393 brl. og yfirbyggt 1975 og mældist þá 391 brl.
Árið 1983 er skráður eigandi Súlur h/f á Akureyri.
Súlan EA 300 fór til Póllands í breytingar árið 1996 sem gerðar voru í skipasmíðastöðinni Nauta í Gdynia.
Þær fólust m.a í sex metra lengingu, nýrri brú og bakka.
Árið 2007 keypti Síldarvinnslan Súluna sem fór í brotajárn árið 2010.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution