Berghildur SK 137

1581. Berghildur SK 137 ex Geir ÍS 280. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Berghildur SK 137 frá Hofsósi hét upphaflega Halldór Runólfsson NS 301 frá Bakkafirði.

Báturinn var smíðaður í Bátalóni hf. í Hafnarfirði árið 1981 fyrir Hafnarbakka hf. á Bakkafirði.

Hann er 29 brl. að stærð og het síðast Faxi og er gerður út til siglinga með ferðamenn frá Reykjavík. Rifinn í Njarðvíkurslipp janúar- febrúar 2021.

Báturinn bar einnig nöfnin Geir KE 67, Þorsteinn Pétursson BA 326, Geir BA 326, Geir ÍS 280 og Rún RE 24.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd