
Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick kom til Húsavíkur nú undir kvöld en báturinn var í slipp á Akureyri.
Þar var báturinn skveraður fyrir næstu vertíð sem hefst þann 1. apríl nk. en Sjóferðir Arnars ehf. keypti bátinn frá Norðfirði sl. sumar og hóf siglingar á Skjálfanda.
Moby Dick hét upphaflega Aldan RE 327 og var smíðuð hjá Básum hf. í Hafnarfirði árið 1976.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution