Hagland Progress kom með salt til Helguvíkur

IMO 9936343. Hagland Progress. LJósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024.

Norska flutningaskipið Hagland Progress kom til Helguvíkur síðdegis í gær með 1500 tonn af salti á vegum Saltkaupa.

Saltið fer til saltfiskvinnslu Vísis í Helguvík, en Vísir hefur komið sér upp vinnslu í Helguvík þar sem verkaður er saltfiskur á Portúgalsmarkað.

Hagland Progress er nánast nýtt skip. Smíðað 2023 hjá Royal Bodewes í Hollandi og er 87m. á lengd og 15m. á breidd. Það mælist 3,052 GT að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd