Blíðfari GK 275

1979. Blíðfari GK 275 ex Faxafell GK 110. Ljósmynd Alfons Finnsson.

Blíðfari GK 275 kemur hér að landi í Ólafsvík en þetta nafn bar báturinn árin 1993 til ársins 1996.

Blíðfari hét upphaflega Faxafell GK 110 og var með heimahöfn í Vogum á Vatnsleysuströnd.

Hann var smíðaður í Vélsmiðju Jónasar Þórðarsonar í Garðabær árið 1989. 

Faxafell fékk nafnið Blíðfari GK 275 árið 1993 og var lengdur sama ár.

Árið 1996 fær báturinn nafnið Von SF 1 og síðar sama ár verður hann Mundi SF 1.

Árið 1998 til ársins 2010 hét báturinn Þorsteinn BA 1 frá Patreksfirði en hefur upp frá því heitið Haförn ÞH 26.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd