Halldór Jónsson SH 217

1846. Halldór Jónsson SH 217 ex Siggi Sveins ÍS 29. Ljósmynd Alfons Finnsson.

Halldór Jónsson SH 217 er þekkt nafn í flota Ólafsvíkinga og þessi bátur bar það nafn í um tvö ár, 1992 til 1994.

Uphaflega hét báturinn Siggi Sveins ÍS 29 og var smíðaður árið 1987 hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. Ísafirði. 

Stakkholt í Ólafsvík keypti hann sem fyrr segir árið 1992 en báturinn var 104 brl. að stærð.

Árið 1994 kaupir Sigurður Ágústsson ehf. bátinn og nefndi Kristinn Friðriksson SH 3.

Í Stykkishólmi var báturinn til ársins 2004 er var hann seldur til Írlands.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd