
Netabáturinn Særós RE 207 er hér á siglingu eftir löndun í Reykjavíkurhöfn þann 29. febrúar árið 2004.
Særós, sem heitir Halldór afi GK 222, hét upphaflega Einar Hólm SU 50 og var með heimahöfn á Eskifirði.
Báturinn var smíðaður árið 1979 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. á Skagaströnd.
Árið 1983 fékk hann nafnið Gestný Þórðardóttir BA 91 með heimahöfn á Barðaströnd.
Árin 1985 til 1995 hét báturinn Guðbjörn ÁR 34 og heimahöfnin Þorlákshöfn. Frá árinu 1995 hét hann Særós RE 207.
Það var svo árið 2005 sem báturinn var seldur til Vestmannaeyja þar sem hann fékk nafnið Glófaxi ll VE 301 sem breyttist sama ár í Frú Magnhildur VE 22.
Árið 2012 kom báturinn á Reykjanesið þar sem hann hefur verið síðan. Fyrst hét hann Frú Matthildur GK 222 en frá árinu 2016 hefur báturinn borið það nafn sem hann ber í dag.
Báturinn mælist í dag rúmlega 23 brl. að stærð en hann var lengdur árið 1996.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution