
Frystitogarinn Hrafn GK 111 kemur hér til hafnar í Hafnarfirði þann 29. febrúar árið 2004.
Hrafn hét upphaflega Sléttanes ÍS 808 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Fáfni hf. á Þingeyri. Smíðaár 1983 og stærð þess 472 brúttórúmlestir.
Sléttanesinu var breytt í frystitogara í Póllandi árið 1993. Það var einnig lengt þá um 10,5 metra og sett á það perustefni.
Þorbjörn hf. í Grindavík keypti Slétttanesið haustið 1999 og gaf því nafnið Hrafn GK 111. Seljandi var Ingimundur hf. í Reykjavík sem hafði keypt skipið að vestan fyrr um sumarið.
Hrafn GK 111 var seldur úr landi árið 2015.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.