Sólfari RE 26

1156. Sólfari RE 26 ex Látraröst GK 306. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002.

Þessi mynd af Sólfara var tekin 22. mars árið 2002 en hann átti eftir að verða BA, RE og SU áður en yfir lauk en hann var rifinn í Njarðvík árið 2010.

Báturinn, sem var tekinn af skipaskrá árið 2008, var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1971 og var 149 brl. að stærð.

Báturinn hét upphaflega Arinbjörn RE 54. Eigandi Sæfinnur hf. í Reykjavík sem átti bátinn í þrjú ár en þá var hann seldur til Vestmannaeyja þar sem hann fékk nafnið Elías Steinsson VE 167.

Síðar bar hann nöfnin Fagurey SH 71, Sólfari AK 170, Lómur SH 177,  Lómur BA 257,  Jón Klemenz ÁR 313,  Trausti ÁR 313,  Hrausti ÁR 313, Látraröst ÍS 100, Látraröst GK 306, Sólfari RE 26, Sólfari BA 26, Sólfari RE 16 og Sólfari SU 16.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd