Ný Cleopatra 33 til Ólafsvíkur

3046. Glaður SH 226. Ljósmynd Trefjar 2023.

Sverrisútgerðin ehf. í Ólafsvík fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 33 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Gísli Marteinsson verður skipstjóri á bátnum sem hefur þegar hafið veiðar.

Nýi báturinn heitir Glaður og er hann 9.9 metrar að lengd og mælist 11 brúttótonn.

Báturinn leysir af hólmi eldri Cleopatra bát með sama nafni sem þjónað hefur útgerðinni dyggilega frá því í árslok 1999.

Aðalvél bátsins er af gerðinni John Deere 6090  550hö tengd ZF286IV gír.

Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni Furuno/MaxSea frá Vestan ehf. í Grundarfirði.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbuinn til neta-, línu- og handfæraveiða en handfærarúllur eru frá DNG.

Lest bátsins rúmar 8 stk. 660 lítra fiskikör. 

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Báturinn er vel búinn tækjum.  Demparastólar í brú fyrir skipstjóra og háseta og í lúkar er fullbúin eldunaraðstaða og svefnpláss fyrir tvo.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd