
Hér gefur að líta eikarbátinn Halkion SH 808 í slipp á Húsavík sumarið 2005 en þá var nýbúið að kaupa bátinn til Þórshafnar á Langanesi.
Þar koma hann í stað Draupnis ÞH 180 sem var samskonar bátur og hafði skemmsti og ekki svarað kostnaði að gera við.
Halkion fékk því nafnið Draupnir ÞH 180 en útgerðarsaga hans á Þórshöfn var stutt því eldur kom upp í bátnum árið 2007.
Og líkt og með forvera hans var báturinn það illa skemmdur að ekki var ráðist í að gera við bátinn en lesa má um örlög hans á vefnum aba.is
Báturinn, sem var 12 brl. að stærð, hét upphaflega Hafrún EA 154 og var smíðaður árið 1972 fyrir Hríseyinga í Skipasmíðastöð KEA.
Frá Hrísey fór báturinn til Súðavíkur árið 1976 þar sem hann hélt nafni sínu en var ÍS 154.
Árið 2001 var báturinn seldur til Bíldudals þar sem hann fékk nafnið nafnið Pétur BA 240 en þar stoppaði hann stutt.
Síðar þetta ár var báturinn kominn í Stykkishólm og fékk það nafn sem hann ber á myndinni hér að ofan, Halkion SH 808.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution