
Svanur ÞH 100 heldur hér til veiða frá Húsavík en þaðan var báturinn gerður út á sjöunda áratugnum.
Upphaflega hét báturinn Farsæll II EA 130 og var smíðaður fyrir Hríseyinga í Skipasmíðastöð KEA árið 1964.
Báturinn, sem er 18 brl. að stærð, var seldur til Húsavíkur síðar það ár og kom þangað í byrjun desember. Kaupandi var Útgerðarfélagið Vísir h/f sem nefndi bátinn Svan ÞH 100.
Útgerðarfélagið Vísir h/f gerði bátinn út til ársins 1969 er nýr og stærri Svanur ÞH 100 var keyptur.
Meira um bátinn síðar en hann heitir Lundi RE 20 í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.