
Björgunarskip Landsbjargar, Sigurvin, sigldi með Villa Páls nýjum báti Björgunarsveitarinnar Garðars yfir Skjálfanda í dag og að bryggju á Húsavík.
Sigurvin kom til heimahafnar á Siglufirði í marsmánuði sl. en hann er einn þrettán báta sem Landsbjörg hyggst láta smíða fyrir sig í Finnlandi.
Sigurvin er annar í röðinni en fyrsta skipið er Þór frá Vestmannaeyjum.





