Sléttbakur EA 304

1351. Sléttbakur EA 304 ex Stella Kristína. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Sléttbakur EA 304 liggur hér fánum prýddur við brygggju á Akureyri og ef ég man rétt var þetta eftir að breytingum á honum lauk í Slippstöðinni árið 1987

Sléttbakur EA 304 hét áður Stella Kristína og var gerður út frá Færeyjum. Skipið var smíðað í Sjövikgrend í Noregi árið 1968, en keypt ásamt Stellu Karinu, til Íslands af Útgerðarfélagi Akureyringa árið 1973. 

Stella Karina fékk nafnið Svalbakur EA 302.

Breytingarnar sem gerðar voru á Sléttbak árið 1987 fólust m.a í átta metra lengingu og honum breytt aftur í frystitogara. Já aftur er skrifað því upphaflega voru Stellurnar frystitogarar.

Samherji hf. eignaðist Sléttbak árið 2002 og fékk hann nafnið Akurerin EA 110 og síðar Snæfell EA 310.

Togaranum var siglt til Belgíu árið 2019 þar sem hann var rifinn í brotajárn.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd