Julie kom til Húsavíkur í dag

IMO 9277307. Julie ex Gures. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023.

Flutningaskipið Julie kom til Húsavíkur í dag og lagðist að Bökugarði þar sem skipað verður upp hráefnisfami fyrir kíslilver PCC á Bakka.

Julie, sem siglir undir fána Portúgals með heimahöfn á Madeira, var smíðað í Hollandi árið 2003.

Skipið, sem áður hefur borið nöfnin Gures, Tip Leer og Vossdiep, er 118,55 metrar að lengd. Breidd skipsins er 15,2 metrar og það mælist 4,967 GT að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd