![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2023/06/ronja_fjord_3.jpg?w=1024)
Ronja Fjord kom til Húsavíkur í morgun en skipið er í seiðaflutningum frá Kópaskeri austur á firði.
Ronja Fjord var smíðuð í Aas-skipasmíðastöðinni í Vestnes, Noregi árið 2014 og hét upphaflega Oyfjord.
Skipið, sem siglir undir norskum fána og er með heimahöfn í Haugasundi. Það er 69 metra langt, 12 metra breitt og mælist 1,447 GT að stærð.
![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2023/06/ronja_fjord_1.jpg?w=1024)
![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2023/06/ronja_fjord_2.jpg?w=1024)
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution