Álsey VE 2 komin í liti Ísfélagsins

3000. Álsey VE 2 ex Hardhaus H-120-AV. Ljósmynd  Óskar Franz 2023.

Álsey VE 2 lét úr höfn í Hafnarfirði um miðjan dag í dag eftir að hafa verið í slipp að undanförnu.

Óskar Franz tók þessa mynd en eins og sjá má er skipið komið í hinn rauða lit Ísfélags Vestmannaeyja.

Álsey VE 2 hét áður Hardhaus H-120-AV en Ísfélag Vestmannaeyja hf. keypti það frá Noregi og kom það til landsins í febrúarmánuði árið 2021.

Skipið sem smíðað var árið 2003 útbúið bæði til flottrolls- og nótaveiða. Það er 68,8 metra langt og 13,8 metra breitt. Í því er 6.120 hestafla aðalvél af gerðinni Wartsila 9L32. Lestar skipsins eru 12 talsins, samtals 1.955 rúmmetrar að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd