
Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick kom til heimahafnar á Húsavík í kvöld en báturinn var í slipp á Akureyri.
Sjóferðir Arnars ehf. keypti bátinn frá Norðfirði þar sem hann bar nafnið Gerpir NK 111 og var í eigu SÚN.
Um Gerpi NK 111 á lesa hér en báturinn hét upphaflega Aldan RE 327 og var smíðuð hjá Básum hf. í Hafnarfirði árið 1976.
Að sögn Arnars Sigurðssonar hjá Sjóferðum Arnars mun Moby Dick hefja hvalaskoðunarferðir frá Húsavík þann 1. júlí næstkomandi.






Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution