Sextugur Húni II í skemmtisiglingu

108. Húni II EA 740 ex Húni II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023.

Hér kemur Húni II EA 740 úr einni af skemmtisiglingum Sjómannadagsins hann fór í þær nokkrar í dag.

Sextugur unglingurinn en í þeirri fyrstu fór hann fyrir flota smábáta og hafnsögbátarnir voru með í för.

Síðan fór hann amk. í tvígang í siglingu um Pollinn með áhugasama gesti um borð.

Það munu birtast fleiri myndir af Húna II og fleiri bátum sem tóku þátt í siglingunni næstu daga.

Húni II var smíðaður í skipasmíðastöð KEA á Akureyri árið 1963 og hét upphaflega Húni II HU 2 frá Höfðakaupstað.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd