
Körrinn er byrjaður siglingar með ferðamenn þetta árið en myndin var tekin í dag þegar hann kom úr hvalaskoðunarferð á Skjálfanda.
Þann 9. mars sl. voru 60 ár síðan báturinn var sjósettur hjá Slippstöðinni á Akureyri en hann hét upphaflega Auðunn EA 157. Hann var smíðaður fyrir þá Kristinn Jakobsson og Garðar Sigurpálsson, Hrísey og áttu þeir bátinn í níu ár.
Hér má lesa sögu bátsins sem Norðursigling hefur gert út til hvalaskoðunar frá árinu 1995.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.