
Nýja brúin á Keili SI 145 var hífð um borð í dag og komið fyrir á sínum stað en báturinn stendur uppi í Húsavíkurslipp. Áður hafði ljósavélina verið hífð í vélarúmið sem og geymasettin.

Það verður gaman að sjá útkomuna þegar fer að koma mynd á þetta en það eru fyrirtækin Víkurraf ehf. og Trésmiðjan Val ehf. sem vinna að verkinu.
Verkið felst í því að breyta bátnum í skemmtibát sem hægt verður að sigla um heimsins höf.

Keilir var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1975 fyrir Korra h/f á Húsavík og hét Kristbjörg ÞH 44.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution