2711. Rún EA 351 ex Særún EA 251. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Í ágústmánuði sl. birtust myndir af Rún EA 351 koma til hafnar á Árskógssandi en nú birtast myndir sem sýna hana koma að landi á Dalvík. Myndirnar teknar sama dag. Báturinn, sem er af gerðinni Siglufjarðar-Seigur, var smíðaður á Siglufirði árið 2007 og … Halda áfram að lesa Rún EA 351
Flokkur: Smábátar
Særós RE 207
1845. Særós RE 207. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Særós RE 207 var smíðuð árið 1987 af Guðlaugi Einarssyni skipasmið á Fáskrúðsfirði og var með smíðanúmer 12 hjá honum. Særós var 10 brl. að stærð og um hana segir á aba.is: Báturinn var smíðaður fyrir Kristinn S. Kristinsson, Kópavogi sem átti hann í tvö ár. Frá árinu … Halda áfram að lesa Særós RE 207
Trausti EA 98
396. Trausti EA 98 ex Sigurður Pálsson ÓF 66. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Hérna er Trausti EA 98 nýskveraður og glæsilegur á siglingahátíðinni sem haldin var á Húsavík sumarið 2011. Um Trausta hefur verið fjallað áður hér á síðunni og lesa má það hér og hér. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Trausti EA 98
Björn Jónsson ÞH 345
7461. Björn Jónsson ÞH 345 ex Arnar SH 157. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Sómabáturinn Björn Jónsson ÞH 345 hét upphaflega Jói á Nesi II SH 259 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar fyrir Pétur F. Karlsson í Ólafsvík. Það var árið 1998 og árið 2006 var báturinn lengdur. Í ársbyrjun 2012 er báturinn kominn með … Halda áfram að lesa Björn Jónsson ÞH 345
Blær ÞH 60
6087. Blær ÞH 60 ex blær ÁR 22. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Blær ÞH 60 hét upphaflega Hafdís SK 147 og var smíðuð árið 1980 af Hermanni Þorgrímssyni á Hofsósi. Báturinn, sem er rúmlega 4 brl. að stærð, var lengst af með heimahöfn á Hofsósi en árið 2008 fékk hann nafnið Hrappur SK 121. Það … Halda áfram að lesa Blær ÞH 60
Kristín ÞH 15
2461. Kristín ÞH 15 ex Elvis GK 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Handfærabáturinn Kristín ÞH 15 kemur hér að landi á Raufarhöfn sl. fimmtudag en það er Rán ehf. sem gerir bátinn út. Að því fyrirtæki stendur Hörður Ingimar Þorgeirsson en hann keypti bátinn frá Grindavík sumarið 2015. Þar hét hann Elvis GK 60 en … Halda áfram að lesa Kristín ÞH 15
Jaki EA 15
2620. Jaki EA 15 ex Guðrún Helga EA 85. Ljosmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Jaki EA 15 kemur hér að landi á Dalvík á dögunum en hann hét upphaflega Bjössi Krist EA 80 og var með heimahöfn í Hrísey. Báturinn var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 2004, hann hét um tíma Guðrún Helga EA … Halda áfram að lesa Jaki EA 15
Geisli SK 66
7443. Geisli SK 66 ex Katrín ÞH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Katrín SK 66 frá Hofsósi kemur hér að landi á Dalvík um helgina en báturinn tók þátt í sjóstangveiðimóti sem þar fór fram. Geisli, sem gerður er út af Geislaútgerðinni ehf. hét upphaflega Ósk HF 860 og var smíðaður árið 1996 í Bátasmiðju … Halda áfram að lesa Geisli SK 66
Sædís EA 54
6936. Sædís EA 54 ex Sandvík GK 73. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Grímseyjarbáturinn Sævík EA 54 kemur hér að landi á Dalvík í gær en það er Sterta ehf. sem gerir hann út. Um bátinn má lesa nánar hér en hann var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar árið 1987. 6936. Sædís EA 54 ex Sandvík GK … Halda áfram að lesa Sædís EA 54
Særún EA 251
2793. Særún EA 251 ex Nanna Ósk II SU 90. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Þessar myndir af Særúnu EA 251 voru teknar á Dalvík í dag en báturinn tók þátt í sjóstangveiðimóti um helgina. Særún EA 251 var keypt frá Fáskrúðsfirði í vor en báturinn hét áður Nanna Ósk II. Það var Útgerðarfélagið Stekkjavík ehf. … Halda áfram að lesa Særún EA 251









