1873. Askur GK 65 ex Bjarni BA 65.Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Askur GK 65 kemur hér að landi í Grindavík í marsmánuði árið 2006 en síðar það ár fékk hann nafnið Már GK 265. Og það var ekki eina nafnabreytingin það ár því báturinn var seldur til Hafnarfjarðar þar sem hann fékk nafnið Ársæll Sigurðsson HF … Halda áfram að lesa Askur GK 65
Flokkur: Smábátar
Kristján ÞH 5
5430. Kristján ÞH 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kristján ÞH 5 var smíðaður af Jóhanni Sigvaldasyni bátasmið á Húsavík árið 1966. Bátinn, sem var tvær brúttórúmlestir að stærð, smíðaði hann fyrir Helga Kristjánsson í Sæbergi sem átti Kristján til ársins 1993. Þá eignaðist Höfði hf. bátinn og síðar Kristján Ásgeirsson. Á seinni stigum eignaðist Aðalsteinn Júlíusson bátinn … Halda áfram að lesa Kristján ÞH 5
Sæúlfur ÞH 188
5644. Sæúlfur ÞH 188 ex Blöndi ÞH 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæúlfur ÞH 188 kemur hér að landi á Húsavík um árið en hann var gerður út af Karli Bjarkasyni. Sæúlfur var smíðaður árið 1962 í Bátalóni í Hafnarfirði og var tæpar þrjár brúttórúmlestir að stærð. Upphaflega hét hann Mardís EA 164 með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Sæúlfur ÞH 188
Nóna GK 166
1893. Nóna GK 166 ex Nónborg BA 23. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Nóna GK 166 var smíðuð í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1988 og hét upphaflega Nónborg BA 23 frá Bíldudal. Árin 2001 til 2005 hét hún Nóna GK 166 og var gerð út frá Grindavík. Árið 200 fékk báturinn nafnið Knolli GK 3 með heimahöfn … Halda áfram að lesa Nóna GK 166
Háey I
2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Línubáturinn Háey I ÞH 295 lætur hér úr höfn á Húsavík eftir löndun en báturinn er gerður út af GPG Seafood ehf. á Húsavík. Báturinn, sem er 30 BT að stærð, var smíðaður hjá Víkingbátum á Esjumelum og hóf róðra í desembermánuði 2021. Með því að smella … Halda áfram að lesa Háey I
Litlanes ÞH 52
2018. Litlanes ÞH 52. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Á þessari mynd Hreiðars Ogeirssonar gefur að líta Litlanes ÞH 52 sem smíðað var fyrir Óla Þorsteinsson á Þórshöfn árið 1989 í Vélsmiðju Seyðisfjarðar. Litlanes ÞH 52 var selt til Fáskrúðsfjarðar árið 1990 þar sem það fékk nafnið Dagbjört SU 50. Báturinn heitir í dag Garpur RE 148 … Halda áfram að lesa Litlanes ÞH 52
Steini GK 45
2433. Steini GK 45 ex Bensi Egils ST 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Steini GK 45 kemur hér að landi í Sandgerði vorið 2008 en báturinn hét upphaflega Bensi Egils ST 13 frá Hólmavík. Báturinn var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 2006 en fékk Steinanafnið sex árum síðar. Heimahöfn Sandgerði í byrjun en síðar … Halda áfram að lesa Steini GK 45
Sæunn Sæmunds ÁR 60
2706. Sæunn Sæmunds ÁR 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Sæunn Sæmunds ÁR 60 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn sumarið 2009 en hún var smíðuð hjá Seiglu á Akureyri árið 2007. Seld norður í Eyjafjörð haustið 2017 og heitir í dag Sólrún EA 151 með heimahöfn á Árskógssandi. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Sæunn Sæmunds ÁR 60
Þórður ÞH 92
5476. Þórður ÞH 92. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér leggur Viðar Þórðarson upp í róður á Þórði ÞH 92 um árið, ca. 1985 plús mínus. Jóhann Sigvaldason bátasmiður á Húsavík smíðaði Þórð ÞH 92 fyrir Viðar árið 1961. Báturinn var 3,51 brl. að stærð, smíðaður úr furu og eik. Búinn 33 heestafla Volvo Penta. Hér má … Halda áfram að lesa Þórður ÞH 92
Bátalónsbátar á Norðfirði
1791. Hafdís NK 50 - 1862. Inga NK 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Þegar minnst er á Bátalónsbáta koma yfirleitt fyrst upp í hugann 11 tonna trébátarnir en hér liggja tveir Bátalónsstálbátar við bryggju á Norðfirði. Þetta var sumarið 2004 en sá blái hét upphaflega Máni ÍS 54 frá Þingeyri og þegar þarna var komið … Halda áfram að lesa Bátalónsbátar á Norðfirði









