Valur SH 322

2400. Valur SH 322. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999.

Hér má sjá Val SH 322 frá Grundarfirði í smíðum árið 1999 hjá Véla- og skipaþjónustunni Ósey hf. í Hafnarfirði.

Árið 2003 hét báturinn Valur HF 322 og þrem árum síðar fékk hann nafnið Ósk KE 5.

 Árið 2007 fékk hann nafnið Hafdís GK 118 með heimahöfn í Grindavík og það ár var báturinn yfirbyggður.

Árið 2010 var Hafdís seld austur á Eskifjörð og varð SU 220.

Árið 2020 var Hafdís komin á Sauðárkrók og varð SK 4 en frá árinu 2021 hefur báturinn heitið Tryggvi Eðvarðs SH 2 með heimahöfn í Ólafsvík.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd