
Stapavík AK 132 hét upphaflega Neisti HU 5 frá Hvammstanga og var smíðaður í Básum hf. í Hafnarfirði árið 1979.
Hann er 24 brl. að stærð og heitir Draumur í dag. Gerður út til hvalaskoðunar frá Dalvík.
Önnur nöfn sem báturinn hefur borið eru Þorsteinn SH 145, Sveinn Sveinsson BA 325 og Hinni ÞH 70.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.