
Dragnótabáturinn Ósk KE 5 liggur hér við bryggju í Sandgerði sumarið 2006 en báturinn bar þetta nafn árin 2006-2007.
Báturinn var smíðaður árið 1999 og hét upphaflega Valur SH 322 með heimahöfn í Grundarfirði.
Smíðin fór þannig fram að skrokkur bátsins var smíðaður af Crist Spolka í Póllandi en öll önnur smíði og frágangur var unninn af Véla- og skipaþjónustunni Ósey hf. Hafnarfirði. (Heimild: aba.is)
Árið 2003 hét báturinn Valur HF 322 og þrem árum síðar fékk hann nafnið Ósk KE 5.
Árið 2007 fékk hann nafnið Hafdís GK 118 með heimahöfn í Grindavík og það ár var báturinn yfirbyggður.
Árið 2010 var Hafdís seld austur á Eskifjörð og varð SU 220.
Árið 2020 var Hafdís komin á Sauðárkrók og varð SK4 en frá árinu 2021 hefur báturinn heitið Tryggvi Eðvarðs SH 2 með heimahöfn í Ólafsvík.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.