
Rækjubáturinn Húni HU 62 frá Blönduósi kemur hér til löndunar á Húsavík sumarið 1993 sem var að mig minnir einstaklega leiðinlegt hvað veðurfar varðaði.
Báturinn hét upphaflega Símon Olsen ÍS 33 og var 35 brl. að stærð, smíðaður árið 1970 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði.
Báturinn fékk nafnið Nökkvi HU 15 árið 1974 og heimahöfn hans Blönduós. Árið 1987 fékk hann nafnið Konráð BA 155 með heimahöfn á Bíldudal en var kominn aftur norður á Blönduós og fékk þá nafnið Húni HU 62.
Frá árinu 2002 hefur báturinn borið nafnið Reginn, fyrstu árin ýmist HF 228 eða ÁR 228 en frá árinu 2012 Reginn ÁR 228 með heimahöfn í Þorlákshöfn.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution