
Dalborg EA 317 hét áður Lucia Garau og var smíðaður sem frystitogari hjá í Ancona á Ítalíu árið 1971.
Söltunarfélag Dalvíkur hf. keypti togarann frá Sardiníu árið 1977 og gaf honum nafnið Dalborg EA 317.
Áður en Dalborg kom til landsins fór togarinn í breytingar í Danmörku sem fólust m.a í því að hann var búinn til djúprækjuveiða með búnað til að sjóða og lausfrysta rækju, og var Dalborg fyrsti rækjutogari sinnar tegundar hér á landi. Heimild: Ægir 21-22 tbl. 1977.
Dalborg var 287 brl. að stærð, lengd hennar var 39,33 metrar og breiddin 8 metrar.
Myndin hér að ofan var tekin í sumarbyrjun árið 1987 þegar Dalborgin var nýbúin í breytingum sem m.a fólust í því að skipt var um brú á skipinu.
Dalborg EA 317 var seld frá Dalvík vorið 1991 og var kaupandinn Eldey hf. sem nefndi togarann Eldeyjar Súla KE 20.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution